Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

Vinir og vandamenn

Börn vina

Komin tími tilJónína Rakel Sigurðardóttir

Jæja kominn tími á að blogga hehe :)
Maður hefur ekki skrifað hér lengi lengi.

En við semsagt fórum austur um jólin. Fórum seinnipartinn 23 des og brunuðum beint í skötuveislu. var hrædd um að lyktin færi illa í mig en svo var ekki og fékk ég mér saltfisk eins og venjulega (já ég borða ekki skötu).
Við gistum hjá tengdó sem var bara æði eins og venjulega. Næs að hafa sér herbergi en hjá mömmu og pabba hefði ég þurft að teppa sjónvarpsherbergið.
Fullt hús af fólki. Guðrún, Sverrir og Stelpurnar þeirra voru þarna líka.
Maður fór í nokkrar veislur, það var kaffi hjá Siggu frænku þar sem amma er að jafna sig eftir hjartaaðgerð, svo var kaffi hjá Unni ömmu Gumma, farið á fáskrúðsfjörð, matarboð og party hjá Unni sem var bara geðveikt gaman, farið á barinn, matarboð heima og svo bara þetta venjulega áramótamatur, varðeldur (á nýjum stað) og flugeldar.

komum heim um 4 jan. Miðjan jan fórum við svo í mæðraskoðun nr tvö sem kom vel út nema hún var ekki ánægð með hvað ég hafði lést. Eftir mæðraskoðunina hefur kúlan aðeins gefið í og finnst mér það mest megnis hafa verið bara síðustu viku! Er komin 18vikur og 3 daga og eru fötin fairn að þrengjast svoldið svo ég fer bráðum að þurfa óléttubuxur hehe. Mjög skrítið að sjá vigtina sýna lægri tölu (7kg lægri en fyrir óléttu) en samt td einar buxurnar aldrei verið svona þrögnar í mittið. Bara æði að sjá kúluna stækka :)

Svo er maður farinn að finna hreyfingar. Byrjaði fyrir svona 2 vikum eða svo að maður fór að finna eitthvað sem gæti verið hreyfingar, fyrir viku var maður orðinn handviss um það og nú um helgina fann ég fyrstu svona virkilega spörk. Fram að því var þetta bara svona fiðringur og hnoð tilfinning. Eitthvað sem strykist við en nú blanda af þvi og svo eitt og eitt högg hehe.

nú er stutt í næsta sónar sem verður um miðjan feb.

Annars er hægt að fylgjast með meðgöngunni á barnalandssíðunni okkar :) linkur til vinstri en annars:  www.alfaborgir.barnaland.is
Endilega skoðið og skrifið í gestabókina.

kv
Jónína

Frábærasti dagur EVER!Jónína Rakel Sigurðardóttir

já dagurinn í gær var alveg æðislegur.
Byrjaði reyndar a að mæta til vinnu. Svo var farið í 12 vikna sónar sem var bara æði!! :) teknar blóðprufur hjá útlenskri konu sem við bara skildum ekki. Vorum að spyrja hversu oft teknar væru blóðprufur á meðgöngu þar sem ég er sprautuhrædd og svarið var bara út í hróa sko hehe.

Svo var mætt aftur til vinnu þar sem ég var til ca korter yfir þrjú. gekk frá og brunaði í Háskólabío í útskriftina mína. Upp á sviði þegar ég ætlaði að taka við skjalinu og hrammann á skólastjóranum þá sagði hann mér að bíða því það væri meira. Ég var semsagt dúx!¨haha fannst það alveg magnað og hefði ekki verið hægt að koma mér meira á óvart! Fékk bókina Jörðin að gjöf og var það gámafélagið sem gaf bókina hehe. Skondið að það var ein að útskrifast úr heilbrigðisskólanum sem heitir Jónína Rakel. Mjög skondið hehe.

Svo var hringt í ömmur, afa, bræður, systur ofl og sagt fréttirnar af krílinu

Svo var haldið smá kaffiboð, góð mæting og rosalega gaman :) Var bara búin á því kl hálf eitt og steinsvaf í næstum 10 tíma hehe.

kv
Jónína og bumbukríli.

Enn nýrri fréttirJónína Rakel Sigurðardóttir

Jæja prófið búið. Fannst ganga illa en ég hef greinilega innst inni vitað hvað ég var að gera því ég fékk bara góða einkunn :) mjög ánægð! :D
Ég er því að fara að útskrifast 19 des :) jibbý!

Er svo fegin og er enn að átta mig á að þetta sé virkilega búið. Búið að taka langan tíma enda getur maður núekki tekið mikið með fullri vinnu, það er ef maður vill eiga smávegis líf með.

kv
Jónína

Jæja Nýjar fréttirJónína Rakel Sigurðardóttir

Já hmm svoldið síðan ég skrifaði síðast hehe.

En ég semsagt fór í bústað í lok nóv. Fórum á hellu, smá vesen en samt æðisleg helgi og frábær bústaður. Potturinn náði ekki vegna kuldans samt að halda sér heitum nema vera lokaður mjög lengi á milli svo seinna kvöldið var farið í 35°C pott! hehe Fórum fljótt upp úr.
Svo var kamína notuð og djöfull hvað kemur mikill hiti frá bara hálfum kubb! voða kósý og gaman.

hmm hvað fleira. Unnur er búin að koma tvisvar á stuttum tíma suður. Voða sæt með flottu kúluna sína :)

Borhildur búin að fá skvísuna sína í fangið. Orðin meira en viku gömul! Ætla að kíkja á þær í dag eftir prófið. Aftur til hamingju með prinsessuna.

Er búin að veraa ð hamast við að klára námsefnið og svo læra undir próf. Lítil einbeiting samt. En held þetta mun ihafast nema það komi svínslegt próf. Ef ég næ þá verð ég með hvíta húfu á sviðinu í háskólabío á föstudaginn í næstu viku :)

hmm já ekkert meira sem ég man í augnablikinu, er eflaust meira en ég bara man það ekki hehehe.

kv
Jónína

Jæja jæjaJónína Rakel Sigurðardóttir

Nú er nóvember hálfnaður. Styttist óðum í lokaprófið mitt. Já lokalokaprófið. Er að taka stærðfræði 503 og er þá loksins búin!!!
Er ca viku á eftir áætlun, ætti að geta náð því upp, vonandi hehe. En það hefur gengið bara sæmilega það sem ég er búin að fara í hingað til.
Svo verður maður bara að nýta vel tímann eftir vinnu fram að prófi.

Verður fínt að vera ekki í neinu eftir áramót. Get bara farið í heimsóknir, ræktina, setið heima og lesið eftir áramót.

Hlakka til að fara heim um Jólin. Búið að vera að breyta heima. Mála, setja lista, skipta um hurðar ofl svo það verður svoldil breyting. Svo eru tengdó líka að breyta hjá sér í stofunni. Hlakka líka til að sjá hversu stóra kúlu Unnur er komin með :) maður hefur ekki séð hana síðan hún var komin rétt 11 vikur eða svo og sat í heitapottinum að segja okkur frá marsbúanum.

Nú á næstu dögum/vikum mun Borghildur fá litla krílið sitt í hendurnar. Allir voða spenntir, held samt að Ninja sé langt mest spennt hehehe og Kristín hefur komið með þá ósk að fá krílið í afmælisgjöf en hún fékk Oddrúnu hennar Önnu í afmælisgjöf í fyrra. Ætli þetta verði árlegt trend? Eitt kríli á ári?

Gerði voða lítið um helgina nema lesa, lesa meira og enn meira, læra og horfa á tv. Gummi var í bústað með vinnufélögunum. Var að skoða myndir. Risastór bústaður! held ég hafi aldrei séð jafn stóran bústað. Svo var ekta arin þarna, ekki kamína. Út af einhverju þá fékk ég martröð báðar næturnar sem hann var í burtu. Furðulegt. Hann hefur oft verið í burtu yfir helgi, lan, sjó, bústaðarferð, útilega með félögunum osfrv. Aldrei átt erfitt með svefn eða dreymt illa þó svo að mér finnist oft óþægilegt að vera ein heima.

Fyrri draumurinn var fullur af draugum sem voru að reyna að segja mér eitthvað sem ég skildi ekki.
Seinni þá skaut einhver Ármann og hann dó og ég grét alveg svakalega í draumnum og þegar ég vaknaði þá runnu tár niður kinnarnar og ég var með svakalegan ekka. Hef ekki lennt í því síðan bara.. veit ekki hvenær að ég hafi grátið í svefni. Man eftir atviki þegar ég hef verið svona 11-12 ára og dreymdi einmitt að ættinigi væri dáinn. Rosalega óþægilegt að vakna svona.

Hafiði einhverntímann lennt í þessu? Að vakna við að gráta og vera með bara ekka? Veit að margir hafa vaknaði við að vera skellihlæjandi í svefni. Myndi miklu frekar vilja þannig drauma hehe.

JæjaJónína Rakel Sigurðardóttir

Jæja gott fólk
Ekki skrifað lengi!

En Já, þar síðustu helgi þá komu mamma og pabbi suður. Þau fóru á árshátið sýsluskrifstofunnar fyrir austan.
Borðað á Grand Hótel þar sem þau gistu eina nótt og fóru svo á Minningartónleika Villa Vill.

Á laugardeginum komu þau svo til okkar. Fór með þeim í heimsókn og svo versluðum við rautt og hvítt vín og lambakjöt og elduðum um kvöldið og mamma bjó til Tiramisú. Geggjaður matur!
Svo var horft á mynd og spjallað.
Á sunnudeginum kíktum við í kringluna og perluna áður en þau fóru í flug austur.

Svo á föstudaginn kom Anna með skvísuna sína í mat til mín, heimagerð pizza. Áttum gott spjall. Borghildur og Ninja komu svo síðar um kvöldið og kjöftuðum við út í eitt.

Á laugaradagskvöldið var svo frænkuhittingur. Borðuðum svaka góðan rétt sem Anna Sigrún eldaði og svo var drukkið og spjallað meðan Graði Kötturinn hennar breimaði og vældi utan í okkur allt kvöldið. það var bæði fyndið og já.. truflandi að sjá köttinn haga sér svona hehe.

Í gær komu svo Tengdó óvænt í heimsókn, komu degi fyrr þar sem spáin var svo leiðinleg í dag. Kíktum í Korputorg, sem er bara fáranlega stórt! Og versluðum okkur ýmislegt í Rúmfó.

Þessi vika fer svo bara í það að læra, hitta þau og svo á ég afmæli á föstudaginn. Er ekki enn bún að ákveða hvað ég geri í tilefni af því.

kv
Jónína

ÝmislegtJónína Rakel Sigurðardóttir

Margt að gerast þessa dagana.
Keyptum nýjan bíl um daginn. SKoda Octavia 2006 árg sjálfskiptur, algjör draumur.
Keyrðum þar síðustu helgi austur á fimmtudeginum eftir vinnu til að vera við jarðarför hennar Langömmu. Sigríður Mýrdal. Varð níræð elsku kerlingin.

Fór í kistulagningu í fyrsta skipti og fannst mér það notaleg stund. Kannski þar sem í þessu tilfelli þar sem maður vissi að amma var svo veik, parkinson, astmi og fékk svo hjartaáfall og lungnabólgu undir það síðasta. Hún var svo slétt og fín i framan, vottur af brosi og voða friðsæl svo maður sá að henni leið betur.

Jarðarförin var svo á laugardeginum, falleg athöfn og var geggjað flott og gott veður. Hitti nokkra ættingja sem ég hafði ekki hitt áður, heyrðum sögur af ömmu ofl skemmtilegt. Htti tvíburabræður hennar sem eru 87 ára, þá Ármann og Sigdór. Fyndið að sjá svona gamla karla og alveg eins, voða krúttlegir.

Svo hef ég ekki gert mikið nema að síðastalaugardag var stelpukvöld, fórum þó nokkrar, held um 12 ca út að borða á Santa María, svo heim til Borghildar þar sem við kjöftuðum út í eitt og svo í bæinn. Mjög gaman! :)

Ekki meira í bili, Adios!

Ástin er Diskó Lífið er PönkJónína Rakel Sigurðardóttir

Í vikunni var mér bent á að á innranetinu væri auglýsing um að maður gæti möguelga fengið gefins miða á sýninguna ástin er diskó lífið er pönk.
Vorum nokkur sem sendum úr mínu útibúi og fengum öll miða :) allir fengu tvo.
Ninja sótti líka um og bauð hún Borghildi en ég bauð Guggu.

Við ákváðum svo í dag að fara saman út að borða fyrir sýningu, hittumst um hálf sjö á vegamótum og fengum okkur að borða. Fékk risa skammt af pasta! gat borðað helminginn! Samt skondið, vorum þrjár sem pöntuðum það sama. Ein fékk hellings grænmeti, ein hellings kjúkling og ein hellings pasta.

Svo röltum við í þjóðleikhúsið og vorum í 10 röð :) bara fínn staður. Var fyrir miðju.
Þetta var rosalega skemmtilegur söngleikur. Samt skondð að einn leikarinn gleymdi textanum einu sinni hehe. Gerði gott úr því samt.
Voru svo klöppuð í kaf í lokin, mér var orðið illt ég klappaði svo mikið.

Hef ekki farið í 8 ár í leikhús! Ætla að reyna að láta liða styttra í næstu leikhúsferð hehe.

Svo röltum við Gugga smá en renndum svo heim til hennar og sátum og borðuðum popp og spjölluðum. Frábært kvöld!

Krumpó svo í næstu viku, hlakka geðveikt til!

SumarfríJónína Rakel Sigurðardóttir

Jæja þá er sumarfríið mitt búið, mæti aftur til vinnu á mánudaginn. Mæli ekki með því að skipta upp sumarfrínu svona.. finnst það ekki hafa gefið mér alveg nóg. Hefði viljað 3 vikur í einu það væri toppurinn.. eða eins og í fyrra, allt í einum rykk :) næstum 5 vikur!

en í ár átti ég ekki fullt sumarfrí, hafði notað nokkra daga og svo fór ég út í júní og gat ekki fengið áframhaldandi frí. Mætti afgangi ef svo má segja og fékk frí 18 ágúst. Erum svoldið mörg og ekki margir sem geta farið í frí á sama tíma og dreyfist því yfir langt tímabil.

En hvað um það. Föstudagin 15 ágúst brunuðum við Gummi út úr bænum með fullan bíl af dóti, Guðrún systir hans var laumufarþegi og kipptum Styrmi með okkur. Brunuðum í Munaðarnes í bústað sem Unnur og Finnur voru með. Það var voða næs. Það var spilað, drukkið, spjallað og farið í heitan pott.

Við héldum svo áfram á laugardeginum austur og vorum komin einhverntímann eftir kvöldmat. Stoppuðum smá á Akureyri.
Á sunnudeginum var haldið upp á afmæli pabba sem varð 45 ára en hann á afmæli 18 ágúst. Næstu dagar var mikil afslöppun, farið í heimsóknir, fórum út í urðir og löbbuðum lengst lengst í geðveiku veðri!

En það var margt sem skeði á meðn við vorum þarna. Amma fékk vægt hjartaáfall, kom í ljós kransæðastífla og fer hún í hjáveituaðgerð eftir nokkar vikur. Báturinn hans tengdapabba sökk, ekki einu sinni heldur tvisvar! Fyrst kom gat alveg óvænt, tæring og svo mannleg mistök. Gummi er að reyna að bjarga tölvunni en er ekki bartsýnn, harðidiskurinn er allur út í salti!

Svo var götupartý hjá mýrunum. Haldið daginn sem Ísland komst í úrslit fyrir 1-2 sætið. Partýið var skipulagt mörgum dögum fyrr en við fréttum á miðju kvöldi að það hefði komið mynd á mbl.is og þar var haldið fram að við værum að halda upp á gengi handboltaliðsins hehehe. En þetta var alveg rosalega gaman. Nokkur grill, borð út á miðri götu, svo var kveiktur varðeldur, spilað á gítara, horn, fiðlu (sem var reyndar biluð) ofl ofl. Svoldið skondið að kl 12 kom rigning, fram að því var búið að vera geggjað veður.

Skrapp líka á Egilsstaði að kíkja á litlu frænku :) eða litlu, hehehe hún er nú bara nokkuð stór. Sá Elísubetu í fyrsta sinn í eitt ár held ég. Og vá hvað er mikill munur á henni, talar á fullu og svona.

Á mánudagskvöldið ákváðum við að skella okkur í smá útilegu og halda heim á leið. Keyrðum norðurleiðina og komum við hjá Ánavatni (rétt hjá Sænautsvatni/Sænautavatni) og þar dressaði Gummi sig upp í camogallanum og greip byssuna og fóra ð reyna að ná gæs. Á meðan sat ég í bílnum og las og fór og fékk mér smá göngu en það var skítakuldi svo ég fór ekki langt. Héldum svo áfram norður um tíuleytið. Komum að Grímsstöðum um ellefu hálf tólf og nenntum ekki lengra. Þar kveiktum við lítið bál, sátum á teppi með svefnpoka yfir okkur og grilluðum pylsur á einnotagrilli meðan við dáðumst að himninum. Alveg stjörnubjart, norðurljós og tunglið var appelsínugult, líkt og eldur. Svo flott! ENN það var skítakuldi, við nenntum ekki að tjalda svo við gerðum tilraun til að sofa í bílnum. Ég sofnaði smá en vaknaði þar sem það fór illa um mig og Gummi gat ekki sofnað svo við keyrðum aftur af stað og ætluðum í Vaglaskóg en þegar þangað var komið rigndi eins og hellt væri úr fötu svo við ákvaðum að ath hvort veðrið væri betra á Akureyri. Það var örlítið betra, rigndi en ekki jafn mikið svo við tjölduðum eins hratt og við gátum, blésum upp dýnuna og þegar við skriðum ofan í svenpokana var klukkan um 6 um morguninn hehe.

Daginn eftir röltum við um, keyrðum lengst inn í dal (eyjafjörð?) á akureyri.. vorum alveg 30-40 mín að keyra inn að botni eða jahh þar til vegurinn endaði. Fórum út að borða á Greifanum og svo í bíó. Sofnuðum svo fyrir tólf. Vöknuðum um sjö því það var svo kalt en sofnuðum aftur þegar fór að hitna úti. Svo var keyrt heim.

Fríið er því búið að vera bara mjög gott :) hvíld, útilega, partý, bústaður. Gæti ekki verið betra!

VerslóJónína Rakel Sigurðardóttir

Í ár var 16 Neistaflugshátíðin haldin og í fyrsta sinn vorum við Gummi ekki þar. Vorum bara heima hér í Rvk þetta árið. Erum að fara austur eftri 12 daga eða svo.
Við tókum helginni bara rólega. Horfðum á mynd, höfðum það Cozy, grilluðum tvisvar þar af einu sinni hjá Svanbjörgu.

Nú fer háskólinn að fara að byrja, krumpufélagar að koma aftur og klúbburinn byrjar vonandi í byrjun sept. Tek síðasta áfangann í stúdentinn jeij!

En fyrst fer ég í sumarfrí :) jam er að fara í sumarfrí um miðjan ágúst til 1 sept. Ekkert sérstaklega ánægð með það en svona er þetta bara stundum.

Jæja ekki meira í bili, ómerkilegur pistill í þetta skiptið.
Síða 1 af 9

Könnun

Ferðu til útlanda í sumar?

Dagar þar til krílið kemur

Gagnasafn

Leit